Lagt fram bréf Þ. Maggýjar Magnúsdóttur félagsráðgjafa dags. 24.01.14 til húsfélagsins að Berjavöllum 6 þar sem fram kemur að íbúð sem hönnuð var fyrir hreyfihamlað fólk hafi verið seld öðrum og að bílastæði ætlað hreyfihömluðum hafi fylgt þeirri sölu.
Svar
Samkvæmt byggingarreglugerð skal ávallt vera a.m.k. eitt stæði við fjölbýlishús ætlað hreyfihömluðum og ber húsfélaginu að leysa málið með hliðsjón af því.