Fyrirspurn
Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi fyrirspurn:
"Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir upplýsingum um hvernig og hvar auglýsingar á vegum bæjarins hafa birst sl. tvö ár..
Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum um eftirfarandi:
1. Fjölda auglýsinga
2. Hvar þær hafa birst
3. Kostnað við auglýsingarnar
4. Ef fastir samningar eru í gangi við einhverja fjölmiðla þá er óskað eftir upplýsingum þar um.
5. Upplýsingar um stefnu bæjarins í auglýsinga- og kynningarmálum og árlegan heildarkostnað vegna þessa."