Borist hefur athugasemd frá eigendum Strandgötu 43 vegna þess að íbúi Mjósunds 2 ekur yfir lóð þeirra til að leggja við Mjósund 2. Með þessu geta eigendur Strandgötu 43 ekki lagt í eitt stæðið á lóðinni. Sjá meðfylgjandi ljósmyndir. Umsögn umhverfis- og framkvæmdasviðs liggur fyrir.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi beinir því til Umhverfis- og framkvæmdasviðs að færa staur í miðju Mjósundi ofar, þannig að lóðarhafi Mjósunds 2 geti bakkað inn í bílastæðið.