Fyrirspurn
Tekið fyrir fyrirspurn frá Hermanni Georg Gunnlaugssyni f.h. Bílaleigu Akureyrar dags. 14.02.14. Erindið varðar nýja aðkomu inn á lóðina til móts við innkeyrsluhurð á suðurhlið/götuhlið. Einnig hefur lóðarhafi áhuga á að nýta hluta af núverandi grassvæði á bæjarlandi til að rýmka um bílastæði við suðurhlið hússins.