Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að deiliskipulagstillaga fyrir lóðirnar Herjólfsgötu 30-34 dags. 03.03. 14 verði auglýst skv. 41. gr. skipulagsslaga 123/2010."
Jafnframt vísar skipulags- og byggingarráð tillögunni til afgreiðslu skipulagsyfirvalda og bæjarstjórnar Garðabæjar, þar sem lóðirnar eru hluti af deiliskipulagi fyrir Hleinar-Langeyrarmalir sem er sameiginlegt deiliskipulag Hafnarfjarðar og Garðabæjar.