Fyrirspurn
Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur óskað eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð við Fléttuvelli sem ætluð var til síðari óþekktra þarfa og mundu nánari byggingarskilmálar verða gerðir þegar þörf verður á. Erindið felur í sér að afmarkaður verði byggingarreitur fyrir þrjár lausar kennslustofur fyrir Hraunvallaskóla og skilmálum breytt þannig að grein 5.9: "Lóð frátekin til síðari þarfa" verði felld brott. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á deiliskipulagi.