Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagsbreytingin ásamt framlögðum uppdráttum og greinagerðum verði auglýst skv. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að skiptingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum eftir bæjarmörkum sveitarfélaganna verði send í auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."