Bæjarráð hefur áhyggjur af lakara þjónustustigi í miðbæ Hafnarfjarðar verði útibúi Vínbúðar ÁTVR lokað í FIrði. Um er að ræða verslun og þjónustu sem bundin er einkarétti ríkisins og í þessu tilviki gæti brotthvarf verslunarinnar veikt stöðu miðbæjarins í Hafnarfirði.