Kristín Svansdóttir Austurgötu 34 sækir um lóðarstækkun í samræmi við gildandi deiliskipulag miðbæjar dags 19.10 2001. Sótt er um lóðastærð eins og sýnir á mæliblaði sem er í vinnslu hjá skipulags og byggingarsviði.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið þar sem það er í samræmi við gildandi deiliskipulag og vísar erindinu til bæjarráðs.