Lagt fyrir bæjarráð í umboði bæjarstjórnar: Endurskoðuð þjónustulýsing og sameiginlegar reglur vegna ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk lögð fram til staðfestingar. Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri félagsþjónustu mætir á fundinn.
Svar
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir framlagða endurskoðaða þjónustulýsingu og sameiginlegar reglur vegna ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.