Skipulags- og byggingarráð gerir svör skipulags- og byggingarsviðs að sínum, samþykkir deiliskipulagið og að afgreiðslu erindisins verði lokið skv. 41. og 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi miðbæjar hvað varðar lóðirnar Strandgata 31-33 og að afgreiðslu erindisins verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010."