Gámar án stöðuleyfis og gjaldtaka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 359
18. nóvember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu innheimta á gjaldi fyrir stöðuleyfi fyrir gáma, sem í dag er 17 þús kr. eingreiðsla. Einnig að harðari aðgerðum verði beitt gagnvart þeim sem hafa gáma án stöðuleyfis, og að gámar í reiðuleysi verði fjarlægðir. Skipulags- og byggingarráð fól Skipulags- og byggingarsviði að gera tillögu um upphæð og útfærslu með hliðsjón af nágrannasveitarfélögum. Einnig að gera úttekt á gámum án stöðuleyfis. Frestað á fundi 357.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna tillögu að útfærslu með það að markmiði að fækka gámum í bænum.