Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og gerir að sínum. Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og að meðferð þess verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Arnarhraun 50 og að málinu verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga 123/2010."