Fyrirspurn
12.liður úr fundargerð SBH frá 19.maí sl.
Lagður fram uppdráttur og greinargerð þess hluta Hleina að Langeyrarmölum sem tilheyrir Hafnarfirði.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagstillagan ásamt greinargerð verði auglýst skv. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð gerir tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi Langeyrarmala verði send í auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."