Óseyrarbraut 22, byggingarleyfi
Óseyrarbraut 22
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 572
29. júlí, 2015
Annað
Fyrirspurn
Eimskip Ísland ehf. sækir 18.3.2015 um að byggja 7.000 fermetra frystigeymslur ásamt eimsvala, rafstöð og spennistöð samkvæmt teikninigum Önnu Margrétar Hauksdóttur dagsettar 14.1.2015. Nýjar teikningar dagsettar 29.4.2015 bárust 30.4.2015. Nýjar teikningar bárust 23.07.15 með stimpli frá slökkviliði og heilbriðgðiseftirliti. Einnig tvær brunaskýrslur.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Skriflegt byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-5 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki. Leiðrétt skráningartafla þarf að berast.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.
5. Skráð hefur verið í gagnasafn Mannvirkjastofnunar að viðkomandi byggingarstjóri og iðnmeistarar hafi gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ákvæði laga þessara.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 194652 → skrá.is
Hnitnúmer: 10086015