Austurgata, klettur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 557
15. apríl, 2015
Annað
Fyrirspurn
Við vettvangsskoðun kom í ljós að vegna framkvæmda á lóð nr. 22 við Austurgötu eru hleðslur á lóð Fríkirkjunnar farnar að losna og grjót hefur runnið niður á Austurgötu. Eins er klettur á lóðarmrkum við nr. 21 brotinn og hefur losnað mikið úr honum.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi óskar eftir því við verktaka að brugðist verði við þeirri hættu sem þarna getur skapast og sett verði upp öryggisnet við hleðslur og klett á meðan á framkvæmdum stendur. Eins er góðfúslega bent á að framkvæmdir á reitnum eru komnar inná lóð safnaðarheimilis Fríkirkjunnar.