Sævangur 5 lóðarframkvæmdir
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 561
13. maí, 2015
Annað
Fyrirspurn
Borist hafa kvartanir vegna framkvæmda á lóðinni við lóðamörk Sævangs 7. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 29.4.2015 lóðarhafa Sævangs 5 skylt að stöðva framkvæmdir, þar sem þær samræmadust ekki deiliskipulagi. Framkvæmdir eru ekki í samræmi við samþykkta uppdrætti, og einnig skal hafa samráð við nágranna um frágang á lóðamörkum. Greinargerð eiganda barst 13.5.2015.
Svar

Framkvæmdir eru ekki í samræmi við afstöðumynd. Í kafla 3.7 í skipulagsskilmálum er gerð krafa um að skilað sé lóðaruppdrætti fyrir allar meiriháttar framkvæmdir á lóð.