Tekin fyrir að nýju eftirfarandi tillaga sem bæjarstjórn vísaði til bæjarráðs á fundi sínum 13. maí sl.
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tekur undir umsögn Reykjavíkurborgar vegna frumvarps til breytinga á lögum um veiðigjöld (692.mál)og gerir hana að sinni."
Svar
Bæjarráð felldi fyrirliggjandi tillögu með 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar gegn 2 atkvæðum fulltrúa Samfylkingar.