Inga Rut Gylfadóttir hönnuður lóðar að Vesturgötu 18 - 20 óskar eftir f.h. Ork ehf að breyta áður samþykktum lóðarteikningum og taka út sorpskýli sem þarna er á lóðarmörkum.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar erindinu til Skipulags- og byggingarráðs. Vakin er athygli á að ekki er hægt að breyta einungis séruppdráttum en ekki aðaluppdráttum. Samræmi þarf að vera þarna á milli.