Marín Ásmundsdóttir óskar í tölvupósti dags. 10. mars 2016 eftir lóð undir garðplöntusölu við Hraunbrún þar sem bærinn er með garðplöntugeymslu, þar var eitt sinn garðyrkjustöð.
Svar
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið en það kallar á breytingu á deiliskipulagi. Umhverfis- og skipulagsþjónustu er falið að ræða nánar við umsækjanda. Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt mætti á fundinn vegna þessa máls.