Ekki er tekið undir þær athugasemdir sem fram koma í bréfum eigenda Skútahrauns 4, dags. 01.06.2016 og 10.06.2016. Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkir uppdrætti Sigurðar Þorvarðarsonar dags. 20.10.2015, með vísan til 1. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að uppbyggingu á lóðinni Skútahraun 6 samkvæmt uppdrætti Sigurðar Þorvarðarsonar dags. 20.10.2015, með vísan til 1. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010.".