Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða lýsingu vegna legu stofnræsis Vallahverfis dags. 28.1.2019 og að málsmeðferð verði í samræmi við 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn að hún samþykki framangreinda skipulagslýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2015.Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri kynnti fyrirhugaðar breytingar á legu ræsisins.