Aðalskipulag Hafnarfjarðar breyting v. vatnsverndarmarka til samræmis við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1780
15. febrúar, 2017
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 24.jan. sl. Frestað á fundi bæjarstjórnar 1.febr.sl.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 23. nóvember 2016 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 fyrir breytingu á mörkum vatnsverndar í landi Hafnarfjarðar, og hún auglýst í samræmi við 1. mgr. 36.gr. laga 123/2010. Athugasemdarfrestur er liðinn. Lagðar fram athugasemdir sem bárust. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Náttúruverndarsamtk Suðvesturlands dags. 10.01.2017, Lárusi Vilhjálmssyni dags. 10.01.2017. og Hraunavinum dags. 09.01.2017. Lögð fram drög að svörum við athugasemdum. Ívar Bragason lögmaður hjá Hafnarfjarðarbæ mætti til fundarins vegna þessa máls. Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi umsagnir við athugasemdum og skipulagið fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og að málinu verði lokið í samræmi við 2. mgr. 32. gr. laga nr. 123/2010."
Til máls tekur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson. Bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari. Bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson kemur til andsvars öðru sinni. Bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari öðru sinni.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson um fundarsköp.
Til máls öðru sinni um fundarsköp tekur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Óafur Ingi Tómasson um fundarsköp.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Helga Ingólfsdóttir. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Bæjarfulltrúi Helga Ingólfsdóttir svarar andsvari. Bæjarfulltrúi Eyrún Ósk Jónsdóttir kemur upp í andsvar.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Margrét Gauja Magnúsdóttir. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Óafur Ingi Tómasson. Bæjarfulltrúi Margrét Gauja Magnúsdóttir svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson. Bæjarfulltrúi Margrét Gauja Magnúsdóttir svarar andsvari öðru sinni.
Kristinn Andersen 2. varaforseti bæjarstjórnar tekur við fundarstjórn.
Bæjarfulltrúi Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls.
Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Kristjánsdóttir tekur við fundarstjórn.
Fundarhlé kl. 15:18.
Fundi framhaldið kl. 16:00
Tillaga um að fresta afgreiðslu málsins til næsta bæjarstjórnarfundar ,sem haldinn verður eftir tvær vikur, samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.
Svar

Til máls tók Ólafur Ingi Tómasson, þá tók til máls Adda María Jóhannsdóttir.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum fyrirliggjandi breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og að málinu verði lokið í samræmi við 2. mgr. 32. gr. laga nr. 123/2010.