Dagsektir vegna gáms sem búið er að tengja við húsið teknar til umfjöllunar að nýju.
Eigenda var sent bréf þess efnis 10.08.2016 og ekki var brugðist við því.
Svar
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.