Lausamunir, bílar og fleira hefur verið sett út fyrir lóðarmörk og athafnarsvæði stækkað út fyrir lóðarmörk.
Eiganda sent bréf 26.07.2016 vegna þessa og ekki hefur verið brugðist við því.
Svar
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja á dagsektir á eiganda. Dagsektir eru 20.000 kr á dag frá og með 21 sept. 2016 í samræmi við 56 gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.