Lögð fram fyrirspurn Eyvindar Guðmundssonar, dags. 30.12.2016, til skipulagfulltrúa vegna deiliskipulagsbreytinga við Kvistavelli 66-72. Um er að ræða að lækka hús úr 2. hæðum í 1. og breytingu á byggingarreitum húsa.
Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 16.01.2017.
Svar
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að heimila lóðarhafa að vinna á sinn kostnað breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.