Fyrirspurn
Lögð fram fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2018 og 2019-2020.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mættu til fundarins.
1.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 30.okt.sl.
Framhald umræðu um fjárhagsáætlun 2018.
Einnig farið yfir gjaldskrár hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur áherslu á að liður 31- 582-4976 í rekstraráætlun eignasjóðs, snjómokstur, verði leiðréttur um 21 millj.kr. til að tryggja viðunandi þjónustu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi gjaldskrár fyrir eignasjóð, vatns- og fráveitu og vísar þeim til bæjarráðs.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir með 2 atkvæðum að vísa fyrirliggjandi rekstrar- og framkvæmdaáætlun til bæjarráðs.
Fulltrúar Samfylkingar leggja fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að farið sé í uppbyggingu á leikskóla á Öldunum í Suðurbæ strax á næsta ári. Síðan starfsstöð Brekkuhvamms við Hlíðarbraut var lögð niður á síðasta skólaári sækja nú um 100 leikskólabörn er búa í Suðurbæ, leikskóla í önnur skólahverfi. Er það umstalsvert meira en í nokkru öðru hverfi bæjarins. Af því hlýst mikið óhagræði fyrir íbúa hverfisins með börn á leikskólaaldri. Leikskólaþjónusta er nærþjónusta og mikilvægt er að hún sé það m.a. með tilliti til umhverfismála, gæða íbúahverfa sem og annarra þátta. Að okkar mati þarf 100 milljónir inn í fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2018 svo hægt sé að fara í þessa uppbyggingu á næsta ári.
Við fulltrúar Samfylkingarinnar hefðum einnig viljað sjá hærri upphæðir fara til umhverfismála í sveitarfélaginu á næsta ári sem og að markvissari skref hefðu verið stígin í að íbúar hefðu raunveruleg áhrif á framkvæmdir í sínu nærumhverfi með samræðu og tillögum á grundvelli aukins íbúalýðræðis líkt og gerist í nágrannasveitarfélögum okkar og hefur gefið góða raun. Að áætla 32 milljónir til þessara þátta í fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun á næsta ári er langt frá því að vera ásættanlegt. Það á ekki síst við í ljósi þess að fjárhagsstaða bæjarins er með besta móti en hagnaður fyrstu 8 mánuði ársins er um 1300 miljónir króna. Af því má sjá að við erum í færum til að setja aukið fé til þessara mikilvægu málaflokka sem uppbygging leikskóla í Suðurbæ, aukin áhersla á umhverfismál og áhersla á íbúalýðræði í tengslum við framkvæmdir eru.
Fulltrúar Samfylkingarinnar geta á grunni þessara athugasemda ekki samþykkt áætlunina og sitja því hjá við afgreiðslu hennar."
1.liður úr fundargerð fræðsluráðs 30. otk. s.l.
Yfirferð á fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu fyrir fjárhagsárið 2018 lög fram.
Fræðsluráð samþykkir fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu 2018 með þremur atkvæðum, tveir sitja hjá. Fræðsluráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu til bæjarráðs.
1.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 31.okt.sl.
Yfirferð fjárhagsáætlunar fjölskylduþjónustu fyrir fjárhagsárið 2018 lögð fram.
Fjölskylduráð samþykkir fjárhagsáætlun fjölskylduþjónustu 2018. Fjölskylduráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun fjölskylduþjónustu til bæjarráðs.