Krýsuvíkurvegur, nýtt hringtorg við Ásbraut og Hellnahraun, umsókn um framkvæmdarleyfi
Krýsuvíkurvegur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 658
3. maí, 2017
Annað
Fyrirspurn
Hafnarfjarðarbær í samvinnu við Vegagerðina sækir með bréfi dags. 2. maí 2017 um framkvæmdaleyfi til að byggja hringtorg á Krýsuvíkurvegi með tengingum við Klukkutorg og Hellnahraun II/III. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagði Hellnahraun 2. áfangi - breyting á deiliskipulagi frá 2015.
Svar

Skipulagsfulltrúi samþykkir framkvæmdaleyfi með vísan í 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.