Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti breytta landnotkun og deiliskipulagi fyrir Suðurgötu 40-44 og leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á landnotkun í aðalskipulagi Hafnarfjarðar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt samþykki bæjarstjórn breytt deiliskipulag fyrir Suðugötu 40-44 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna vísa til bókunar fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna í bæjarstjórn 24.5. 2017 varðandi þetta mál.