Krýsuvík, Seltún stæði fyrir súpubíl.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 662
31. maí, 2017
Annað
‹ 14
15
Fyrirspurn
F&C ehf Fífuvöllum 28 221 Hafnarfirði sækir um leyfi til að staðsetja súpubíl við Seltún á tímabilinu 1. júní - 15. september. Opnunartími er frá 10 - 20. Um er að ræða sama súpubíl og var síðasta sumar en eigendaskipti hafa orðið á bílnum.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar staðsetningu súpubílsins á umræddu tímabili en vekur athygli á að ekkert aðgengilegt rafmagn er í Seltúni.
Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, eins litla röskun og unnt er og að allt verði lagað sem raskað verður. Þar sem Krýsuvíkursvæðið er innan Reykjanesfólkvangs sem er friðlýstur skv. lögum um náttúruvernd verður sérstaklega að gæta þess að valda ekki mengun, spjöllum eða neikvæðum umhverfisáhrifum.

Vakin er athygli á að svæðið liggur við Seltún sem er mjög virkt sprengigíga- og borholusvæði. Hafnarfjarðarbær ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem kann að hljótast vegna þessarar starfsemi.
Allt rusl og drasl skal fjarlægt eftir daginn og svæðið skilið eftir í viðunandi ástandi.