9. liður úr fundargerð bæjarráðs 8. febrúar s.l.
Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Breiðhellu 1 þar sem fram kemur að óskað er eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 1 við Breiðhellu til Fitjaborgar ehf. verði afturkölluð.
Svar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthlutun lóðarinnar nr. 1 við Breiðhellu til Fitjaborgar ehf. verði afturkölluð.