Einhella 3.og 5., breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 712
4. júlí, 2018
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti þann 6.3.2018 breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar við Einhellu 3 og 5. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hefur öðlast gildi. Auglýst í b-deild stjórnartíðinda þann 18. apríl sl.
Í ljós kom skekkja á skipulagsuppdrætti. Í ljósi þess var endurskoðun grenndarkynnt sk. 1.mgr. 2.gr. um heimild til embættisafgreiðslu skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Grenndarkynnt var frá 5.6.- 3.7. 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulagsfulltrúi samþykkir þær breytingar sem gerðar voru á uppdrætti og að málinu verði lokið í samræmi við skipulagslög 123/2010.