Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur jákvætt í erindið að uppfylltum skilyrðum sem fram koma í umsögn arkitekts dags.5.mars 2018.
Erindið verður grenndarkynnt í samræmi við 1.mgr. 2. gr. samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði þegar umsókn um deiliskipulagsbreytingu liggur fyrir og öll gjöld hafa verið greidd.