Einhella 2,umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 711
27. júní, 2018
Annað
Fyrirspurn
Árni Rúnarsson f.h. Nýrra stoðar ehf leggur þann 24.4. 2018 inn umsókn um deiliskipulagsbreytingu á lóðinni við Einhellu 2. Byggingareitur er stækkaður og nýrri innkeyrslu er komið fyrir á vestanverðri lóðinni. Nýtingarhlutfall lóðar helst óbreytt.
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 6.3.2018 var samþykkt að grenndarkynna breytingu á lóðinni við Einhellu 2 í samræmi við 1.mgr. 2.gr. samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar. Erindið var sett í grenndarkynningu frá 22.6.- 20.7.2018 og sent til lóðarhafa Einhellu 3, 4 og 5. Undirskrift þeirra liggur nú fyrir til samþykktar á deiliskipulagsbreytingunni. Grenndarkynningu er því lokið.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir breytt deiliskipulag í samræmi við fyrirliggjandi gögn.