Árni Rúnarsson sækir þann 1.5.2018 um leyfi til að reisa grindverk á lóðamörkum í samræmi við ljósmyndir og skissu er sýna fyrirhugaða staðsetningu grindverksins.
Svar
Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi. Huga þarf að hæð grindverks mót götu þar sem staðsetning þess og hæð byrgir sjónræn tengsl við götu og gangstétt. Huga þarf að uppbroti og hæð grindverks sunnan við húsið.