Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju erindi Þrastarverks ehf. þar sem þeir leggja fram fyrirspurn um að byggja fjölbýlishús á lóðinni Brenniskarð 1-3. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð um skipulagsskilmála varðandi bílakjallara og bílastæði á fundi sínum þann 14.08.2018.
Lögð fram greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 24.08.2018.