Fyrirspurn
Kjartan Freyr Ásmundsson og Helga Ágústsdóttir sóttu þann 25.07.2018 um endurbyggingu á geymslu með stækkun samkvæmt teikningum Sveins Valdimarssonar dags. 16.07.2018. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann. 25.7.2018 var samþykkt með vísan til 2. gr. í Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði frá 04.05.2004 að grenndarkynna erindið. Athugasemdir vegna grenndarkynningar sem fór fram tímabilið 16.8. - 13.9.2018 bárust.