Hvaleyrarvatn, Seldalur, beiðni um afnot og uppbyggingu frá Hraunbúum
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 655
28. ágúst, 2018
Annað
Fyrirspurn
Bjarni Freyr Þórðarson aðstoðarfélagsforingi hjá Hraunbúum óskar eftir í tölvupósti dags. 21. júní 2018 að halda árlegt vormót félagsins í Seldal við Hvaleyrarvatn næsta vor. Einnig er óskað eftir því að fá svæðið til úthlutunar til uppbyggingar á útilífsmiðstöð Hraunbúa til framtíðar. Lögð fram umsögn Skógræktarfélags Hafnarfjarðar dags. 20. ágúst 2018.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að ræða við forsvarsmenn Hraunbúa og skógræktarfélagsins varðandi erindið.