1.liður úr fundargerð fræðsluráðs frá 30.janúar sl.
Lagt fram til samþykktar. Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi reglur um skýjalausnir í skólastarfi og vísar drögum til frekari samþykktar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Svar
Til máls tekur Kristín Thoroddsen. Einnig tekur til máls Friðþjófur Helgi Karlsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum fyrirliggjandi reglur um skýjalausnir í skólastarfi.