Suðurgata 35b, breyting á deiliskipulagi
Suðurgata 35
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 675
16. apríl, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Þann 22. janúar 2019 óskar Davíð Snær Sveinsson eigandi hússins við Suðurgötu 35b eftir breytingu á deiliskipulagi er nær til lóðarinnar. Lagður var fram uppdráttur Yddu arkitekta er gerir grein fyrir breytingunum. Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þ. 29.1.2019 að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna skv. 1.mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin var auk þess kynnt aðliggjandi lóðarhöfum. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 6.2.2019 ofangreinda bókun. Breytingartillagan var auglýst frá 15.2.-29.3.2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir nýtt deiliskipulag lóðarinnar Suðurgötu 35b og að meðferð umsóknarinnar verði samkvæmt 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122526 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025954