Ólafur Ingi Tómasson tekur til máls.
Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson. Ólafur Ingi Tómasson kemur til andsvars. Jón Ingi Hákonarson svarar andsvari. Ólafur Ingi Tómasson kemur að andsvari í annað sinn. Jón Ingi Tómasson svarar andsvari í annað sinn. Ágúst Bjarni Garðarsson kemur til andsvars. Jón Ingi Hákonarson svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Ágúst Bjarni Garðarsson.
Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Ágúst Bjarni Garðarsson kemur til andsvars. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og byggingaráðs með 7 atkvæðum meirihluta, fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar greiða atkvæði á móti. Fulltrúi Bæjarlista situr hjá.
Adda María Jóhannsdóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Jón Ingi Hákonarson gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Ólafur Ingi Hákonarson kemur að svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:
Fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga opnar á fjölbreytta byggð íbúðar-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Tillagan fellur vel að markmiðum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins þar sem meginstefnan er uppbygging og þétting byggðar við miðkjarna og önnur samgöngumiðuð þróunarsvæði og að hlutfall íbúðabyggðar á þeim svæðum vaxi úr 30% í 66%. Landsvæðið liggur að fyrirhugðuðum samgönguás Borgarlínu sem styrkir markmið svæðisskipulagsins og þéttingu byggðar. Fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga gerir ráð fyrir að með bættum almenningssamgöngum muni þeim bílastæðum, sem tillagan gerir ráð fyrir ofanjarðar fækka til að auka umhverfisgæði á útivistarsvæði. Þá er deiliskipulagstillagan í samræmi við þá framtíðarsýn og hugmyndir sem settar eru fram í rammaskipulagsdrögum fyrir Hraun vestur. Í greinargerð aðalskipulagsins dags. 20.04.2020 er gerð góð grein fyrir leik- og grunnskólum ásamt opnum grænum svæðum. Gert er ráð fyrir uppbyggingu á öllu svæðinu, Hraun vestur, geti tekið allt að 20 árum og gera má ráð fyrir ýmsum breytingum á því tímabili er varðar samgöngur og samfélag sem getur haft áhrif á skipulag framtíðar.
Adda María Jóhannsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:
Undirritaðir bæjarfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Bæjarlistans hafa stutt og hvatt til öflugrar uppbyggingar húsnæðis en um leið staðið ábyrga vakt um gæði byggðar og íbúasamráð. Við vinnslu þessa máls hefur verið vikið frá rammaskipulagi sem sátt hafði náðst um og kynnt var fyrir íbúum. Undirritaðir fulltrúar ítreka fyrri bókanir um málið í bæjarstjórn og skipulags- og byggingarráði.
Adda María Jóhannsdóttir
Friðþjófur Helgi karlsson
Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
Jón Ingi Hákonarson