Þann 18.3.2019 leggur Andri Roland Ford inn fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa þar sem óskað er eftir að hafa skúr við lóðarmörk út mót bæjarlandi.
Svar
Tekið er jákvætt í erindið. Byggingarfulltrúi fellst á staðsetningu skúrs, á horni lóðar við göngustíg, svo framarlega að hann sé færður innar á lóð sem nemur 1 metra líkt og tillaga er fylgdi erindinu gerir ráð fyrir.