Fyrirspurn
Þann 3. maí sl. leggur Páll Poulsen inn fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa þar sem óskað er eftir að fara í deiliskipulagsbreytingar er ná til lóðarinnar við Bjargsskarð 5, Skarðshlíð 2. áfanga. Með erindinu fylgir uppdráttur er gerir grein fyrir breytingunum.