Hafnarsvæði, Aðalskipulagsbreyting
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 3523
4. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
17.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.júlí sl. Með vísan til þeirrar rammaskipulagsvinnu sem liggur fyrir vegna Flensborgarhafnar og hafnarsvæðis í námunda við hana er lagt til að hafin verði vinna aðalskipulagsbreytingu er varðar landnotkunarflokk svæðisins í samræmi við 1.mgr 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hafin verði vinna við breytingu á landnotkunarflokk Flensborgarhafnar og nágrennis í samræmi við 1.mgr 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs um að hafin verði vinna við aðalskipulagsbreytingu á hafnarsvæðinu.