Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 22.apríl sl.
Tilboðsgjafi Bak Höfn ehf., óskar eftir að lóðarhafi verði GS Hús ehf. Félagið GS Hús ehf er í eigu sömu aðila. Lagður fram ársreikningur félagsins ásamt yfirlýsingu frá banka.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka framlögðu tilboði í Hrauntungu 5. Bak Höfn ehf hefur framselt tilboðið til GS Húsa ehf sem er félag í eigu sömu aðila og tilboðsgjafi og úthluta lóðinni til GS - Húsa ehf., kt. 641007-0990.
Kristinn Andersen vék hér af fundi. Varamaður hans, Rósa Guðbjartsdóttir, tók sæti hans á fundinum.