Lántökur 2020
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1862
20. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
6.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 14.janúar sl. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi bókun: Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins: Bæjarstjórnar Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka eitt lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 396.046.108.- kr. til 35 ára, með lokagjalddaga 2055 og annað lán að fjárhæð 500.000.000 kr. til 2034 í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum Lánin eru tekin vegna fjármögnunar Skarðshlíðarskóla en verkefnið hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Til tryggingar lánunum standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Svar

Til máls tekur Sigurður Þ. Ragnarsson, til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu bæjarráðs um lántökur.