6.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 3.desember sl.
Lagt fram erindi frá stjórn SORPU bs. dags. 27.nóvember sl. um samþykki á lántökum í tengslum við rekstraráætlun. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs sat fundinn undir þessum lið. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindi frá Sorpu bs og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 8 greiddum atkvæðum en fulltrúi Viðreisnar greiðir atkvæði á móti tillögunni en fulltrúar Bæjarlistans og Miðflokksins sitja hjá.
Ágúst Bjarni Garðarsson gerir grein fyrir atkvæði sínu.