Fyrirspurn
Óskað er eftir leyfi til uppsetningar á skjólvegg á lóðarmörkum Hamarsbrautar 17 og Suðurgötu 44. Á umræddum lóðarmörkum var áður skjólveggur/girðing. Þar eru á stórum hluta einnig járnstaurar sem voru hluti af uppistöðum. Þessir staurar ná í um 1,8m hæð frá lóðarmörkum. Óskað er eftir því að fylgja þessari uppsetningu og hæð.