6. 2009431 - Tinnuskarð 24, breyting á deiliskipulagiSkipulagsfulltrúi samþykkti á fundi sínum þann 30.9. sl. að grenndarkynna tillögur að deiliskipulagsbreytingu, er nær til lóðarinnar við Tinnuskarð 24 í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga 123/2010, fyrir aðliggjandi lóðarhöfum ásamt öðrum sem hagsmuna kunna að gæta. Erindið var grenndarkynnt frá 8.10.-10.11.2020. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð frestaði erindinu á fundi sínum þann 17.11. s.l. Ný gögn bárust. Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð vegna athugasemda sem borist hafa og koma með tillögu um áframhald máls.