Fyrirspurn
Tekin fyrir á ný umsókn Kristins Ragnarssonar f.h. eigenda dags. 15.9.2020 um breytt deiliskipulag. Tillagan að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir fjölgun íbúða þ.e. að á jarðhæð verði heimilað að fá samþykktar tvær íbúðir þannig að íbúðum á lóð fjölgi úr tveimur íbúðum í þrjár.
Skipulags- og byggingarráð samþykki að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Suðurgötu 36 og var það staðfest í bæjarstjórn. Tillagan var auk þess grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum. Tillagan var auglýst frá 27.10.2020-08.12.2020. Athugasemdir bárust. Á fundi ráðsins þann 15. des. s.l. var óskað eftir greinagerð skipulagsfulltrúa vegna framkominna athugasemda. Greinargerð skipulagsfulltrúa lögð fram.